Veggjaútburðurinn

Maður var á reið á ásunum hjá Síðumúla í Hvítársíðu. Hann vissi ekki fyrri til en útburður kom að honum og segir:

„Veggja-Sleggja heiti ég;
á mig Geir og Gunna;
á bak mun ég fara
og bráðla ríða kunna.“

Hljóp hann þá upp á lendina á hestinum og sligaði hann.

Þessa vísu er og sagt að útburður hafi kveðið, en ekki vita menn hver drög til hennar liggja:

„Er ég skjótur eins og valur,
undirförull sem kjói;
föðurland mitt er Flókadalur,
fæddur er ég á Mói.“1


1 Flókadalur er til bæði í Skagafjarðarsýslu og Borgarfjarðarsýslu og ef til vill víðar á Íslandi, en Mór heitir bær nokkur í Fljótum.

Источник: Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri (1862), Jón Árnason.

Текст с сайта is.wikisource.org