Draugarnir á Hafnarskeiði

(Úr Selvogi.) Eptir það „Gothenborg“ braut við Hafnarskeið, var þar leingi reimt og sáust þar opt 2 draugar á gángi saman, og var að þeim mikið mein. Menn fóru á fund Eiríks prests, og báðu hann ráða þá af. Hann mælti: „Eg get það ekki, heillin góð; en reyna vil eg að gjöra, það eg get.“ Hann skrifar bréf og bað færa draugunum. Menn þessir taka við bréfinu, og fara austur á Hafnarskeið. Draugarnir koma móti þeim; en þeir fá þeim bréfið. Þeir fara að lesa og leiðrétta hvor annan, og heyrðu menn til þeirra þessi orð: „Det er Hekkelfjeld, Hekkelfjeld.“ Þeir lögðu af stað og fóru í Heklu.

Svo segja sumir menn, að Eiríkur léti stilla svo til, að draugarnir sneru mót austri, er þeir tækju við bréfinu, og að hann léti sendimann fá þeim bréfið öfugt, svo það sneri rétt fyrir drauganum. Þeir spyrja þá: „Hvor er det Djævel Hekkelfjeld?“ Maðurinn benti i austur þegjandi, og fóru þeir þegar af stað.

Источник: Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri, safnað hefir Jón Árnason. Leipzig, að forlagi J. C. Hinrichs’s bókaverzlunar, 1862.

OCR: Tim Stridmann