Ævi Snorra goða

Snorri goði átti nítján börn frjálsborin þau er úr barnæsku komust. Þórður kausi var elstur, annar Þóroddur, þriðji Þorsteinn, fjórði Guðlaugur munkur. Þeir voru synir Ásdísar Víga-Styrsdóttur. Fimmta var Sigríður, sétta Unnur. Þær voru dætur Þuríðar, dóttur Illuga hins rauða. Sjöundi Kleppur, áttunda Halldóra, níunda Þórdís, tíunda Guðrún, ellefti Halldór, tólfti Máni, þrettándi Eyjólfur, fjórtánda Þóra, fimmtánda Hallbera, sextánda Þuríður, sautjándi Þorleifur, átjánda Ólöf, nítjándi Snorri. Hann var fæddur eftir föður sinn. Þessi voru börn Hallfríðar Einarsdóttur. Snorri goði átti þrjú börn þýborin. Sá hét annar Þórður kausi, Jörundur og Þórhildur.

Snorri goði var fjórtán vetra er hann fór utan. Hann var utan einn vetur. Hinn næsta vetur er hann kom út var hann að Helgafelli með Berki hinum digra föðurbróður sínum og Þórdísi móður sinni. Þetta haust drap Eyjólfur hinn grái, sonur Þórðar gellis, Gísla Súrsson og þetta vor eftir er Snorri var sextán vetra gamall gerði hann bú að Helgafelli og bjó þar tuttugu og þrjá vetur áður kristni var í lög tekin á Íslandi en þaðan frá bjó hann átta vetur að Helgafelli. Og á þeim síðasta vetri drap Þorgestur Þórhallsson Víga-Styr, mág Snorra goða, á Jörva í Flisuhverfi. Síðan fór hann búi sínu í Sælingsdalstungu og bjó þar tuttugu vetur. Hann lét kirkju gera að Helgafelli en aðra í Tungu í Sælingsdal. En sumir segja að hann léti gera í annað sinn að Helgafelli með Guðrúnu kirkju þá er sú brann er hann hafði gera látið.

Hann andaðist úr sótt á hinum sjöunda vetri hins sjöunda tigar aldurs síns. Það var einum vetri eftir fall Ólafs konungs hins helga. Og var Snorri goði grafinn heima þar í Sælingsdalstungu að þeirri kirkju er hann sjálfur hafði gera látið. Hann er orðinn stórum kynsæll því að til hans telja ættir flestir hinir göfgustu menn á Íslandi og Bjarkeyingar á Hálogalandi, Götuskeggjar í Færeyjum og mart annað stórmenni það er hér eigi er talt, bæði á þessu landi og öðrum.

Текст с сайта Netútgáfan