„Tökum á, tökum á“

Tvær álfkonur fóru einu sinni heim á bæ einn til að skipta um barn. Þær koma þar að sem barnið er sem þær ætluðu að taka. Það lá í vöggu. Enginn maður var þar nærri nema annað barn tvævett. Yngri álfkonan og ógætnari gengur þegar að vöggunni og segir:

„Tökum á, tökum á.“

Þá segir hin eldri:

„Ekki má því mein er á,
kross er undir og ofan á;
tvævetlingur situr hjá
og segir frá.“

Við það fóru þær burtu og fengu ekki aðgjört, bæði sökum krossmarksins sem gjört hafði verið yfir vöggunni og undir barnið áður en það var lagt út af svo og vegna hins tvævetra barns er hjá vöggunni sat og síðan sagði frá þessum atburði.

Источник: Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri (1862), Jón Árnason.

Текст с сайта is.wikisource.org