Svo hefur sagt Jón Guðmundsson lærði að álfar hafi þau upptök að þá er Eva vildi ekki hafa holdlegt samræði við Adam þá hafi sæði hans átt að falla í holu eina og úr því hafi álfar myndazt. Þessa getur Páll prófastur hinn lærði í Selárdal í riti því er hann skrifaði móti Jóni þar sem hann hrekur ástæður Jóns fyrir tilveru álfanna.
Источник: Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri (1955), Jón Árnason, III. bindi, bls. 3.