„Dreptu þann sem sendi þig“

Einu sinni mætti maður draug, — einhverri skottu — á Eyjafjarðarbökkum; hann spyr hana hvern fjandann hún sé að gera inn í Eyjafjörð. Hún segir það, nefni mann fram í firði sem hún eigi að drepa. „Ertu vitlaus?“ segir maðurinn, „hann er dauður, farðu strax til baka og dreptu þann sem sendi þig.“ Hún trúði þessu, sneri aftur og gerði sem henni var sagt, en hinn lifði lengi sem hún átti að finna, og var þetta hrekkur þess sem mætti henni, að skrökva hann dauðan.

OCR: Tim Stridmann