[Handrit Sigurðar Bjarnasonar frá Snæbjarnarstöðum.]
Snemma á 19. öld bjó bóndi sá á Bakka í Fnjóskadal, er Jón hét. Var hann vandaður maður og sannorður. — Eitt sinn fór flest fólkið frá Bakka til kirkju að Illugastöðum, og Jón bóndi og kona hans voru ein heima. Í rökkurbyrjun um kvöldið sátu þau hjón inni í baðstofu. Sá Jón þá, að inn kom lítil stúlka, settist á rúm gagnvart baðstofudyrum og hamaðist að prjóna; horfði hann á hana nokkra stund og sagði svo: „Þú ert rækalli fljót að prjóna.“ Um leið og hann sleppti orðinu, þaut stelpan fram eins og kólfi væri skotið, og þá skellihló Jón. Kona hans spurði hann, að hverju hann hefði hlegið, og sagði hann henni þá, hvað fyrir hann hefði borið. „Þá kemur einhver ókunnugur með messufólkinu í kvöld,“ mælti hún. Varð hún sannspá um þetta, því að þangað kom til gistingar stúlka nokkur. Settist hún á sama rúmið og prjónaði, alveg eins og stelpan hafði gert.
Источник: Gríma XIX. Tímarit fyrir íslenzk þjóðleg fræði. Ritstjórar: Jónas Rafnar og Þorsteinn M. Jónsson. Útgefandi: Þorsteinn M. Jónsson. Akureyri. 1944. Bls. 53–54.
OCR: Speculatorius