„Upp koma svik um síðir“

Einu sinni var tekin gröf í kirkjugarði á prestsetri nokkru; kom þar upp með öðrum grefti hauskúpa ein, og stóð bandprjónn gegnum hana. Prestur geymdi hauskúpuna, þangað til messað var næsta helgan dag á eftir. Beið hann þess, að allt fólk var komið í kirkju, og festi hann þá hauskúpuna upp yfir kirkjudyrum. Eftir embætti gekk prestur fyrstur út með meðhjálpurunum og hugði að þeim, sem út gengu. Þeir urðu einskis varir og gættu þá að, hvort nokkur væri eftir inni; en þar var kerling ein gömul mjög, sem bograði að hurðarbaki, og varð að neyða hana til útgöngu. Drupu þá þrír blóðdropar af kúpunni niður á faldtraf kerlingar. Hún mælti þá: „Upp koma svik um síðir.“ Gekkst hún þá við því, að hún hefði ráðið fyrri manni sínum bana með því að reka prjón gegnum höfuð hans. Var hún þá ung og hafði átt hann nauðug og samfarir þeirra verið skammar. Konan bjó sjálf um líkið, og höfðu ekki aðrir hugað að því. Síðan hafði hún gengið að eiga annan mann, en hann var þá og dauður. Það er mælt, að kerlingu þessari væri drekkt, eins og gjört var mæðrum, er fyrirfóru börnum sínum.

Текст с сайта Netútgáfan