Brynjólf biskup Sveinsson bar þar eitt sinn að, sem maður nokkur átti vingott við stúlku, er var í Skálholti. Mælti þá biskup: „Fúlt brúðkaup og fámannlegt“. Stúlkan leit við honum og svaraði: „Og komu þó fleiri en boðnir voru“. Biskup gekk þegjandi burt.
Eftir sögn séra Friðriks Eggerz 1852.
Источник: Þjóðsögur og munnmæli (1956), Jón Þorkelsson, bls. 31.