Á Íslandi er það siður að kalla biskupinn einn herra, en prestinn séra. Því varð kerlingunni mismælið sem kallaði biskupinn séra sem vísan sýnir:
„Sælir verið þér, séra minn!
sagði ég við biskupinn,
anzaði mér þá aftur hinn:
Þú áttir að kalla hann herra þinn.“
Источник: Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri (1954), Jón Árnason, II. bindi, bls. 510.