Ljótt nafn

Maður kom frá kirkju og var spurður frétta; hann sagði engar nema barn hefði verið skírt í messunni. Hann var spurður hvað barnið hét. „Ég get ekki haft það eftir,“ sagði hann, „það var svo ljótt.“ Fólkið sókti því fastar á að heyra nafnið svo hann varð að segja það. „Það heitir Attaníoss,“ kvað hann. En barnið hét Antoníus.

Источник: Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri (1958), Jón Árnason, V. bindi, bls. 349.

© Tim Stridmann