Kerling kom frá kirkju á jóladaginn og sagði við karlinn sinn: „Nú vissi ég hvað móðir drottins míns hét, í dag; hún hét Finna.“ „Það var ekki satt,“ segir karlinn, „hún hét Máríá.“ „Ég get sannað það,“ segir kerling, „versið er svona: ‚Í því húsi ungan svein og hans móðir Finna.‘ Og Finna hét hún og hafðu það.“
Источник: Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri (1958), Jón Árnason, V. bindi, bls. 345.