„Og það á að heita, Hervör“

Einu sinni fóru hjón til kirkju. En á heimleiðinni [spyr kerling]: „Hver var það sem presturinn var að tala um í dag — Belsebub?“ Hún hefði ekki heyrt það fyrri. „Það eru mestu menn og hreppstjórar,“ segir hann. „Þú ert þá einn af þeim, heillin mín,“ segir hún. „Og það á að heita, Hervör!“

Источник: Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri (1958), Jón Árnason, V. bindi, bls. 345.

© Tim Stridmann