Einu sinni sem oftar messaði einn prestur á öskudaginn og hafði einhver stelpan fest öskupoka aftan í hempuna hans þegar hann gekk út í kirkjuna. En þegar prestur gekk innar eftir kirkjugólfið kom kerling sem sat þar í einum stólnum auga á öskupokann, og varð henni svo bilt við að hún kallaði upp: „Takið þið djöfulinn úr prestinum.“
Источник: Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri (1958), Jón Árnason, V. bindi, bls. 347.