„Mikill smiður var það sem presturinn prédikaði um í dag; það var þúsund þjala smiður,“ sagði kelling ein við bónda sinn þegar hún kom frá kirkjunni. „Ójá,“ segir kallinn, „það vildi ég að sonur okkar væri kominn til hans.“
Источник: Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri (1958), Jón Árnason, V. bindi, bls. 360.