(Handrit Jónasar Rafnars. Sögn frú Þórunnar Stefánsdóttur).
Lokatár heitir vökvi sá, sem er í herðablaðsbelgnum á skepnum. Svo stendur á nafni þessu, að þegar Þökk var beðin að gráta Baldur úr helju (sbr. Gylfaginning kap. 49), fól hún þar táravökva sinn.
Источник: Gríma VII. Þjóðsögur. Safnað hefur Oddur Björnsson. Jónas Rafnar bjó undir prentun. Útgefandi Þorsteinn M. Jónsson. Akureyri. 1932. Bls. 74.