[Handrit Ingibjargar R. Jóhannesdóttur. Sögn Rannveigar móður hennar 1907.]
Helga Jóhannesdóttir hét kona nokkur, amma þeirra Hannesar bónda í Hleiðargarði og Sveins bónda í Myrkárdal. Þegar hún var barn, átti hún heima í Kambfelli í Djúpadal í Eyjafirði, og tíu ára gömul var hún látin sitja yfir ám á Hraunárdal. — Eina nótt bar svo við, að hún lagðist til svefns undir stórum steini niðri í árgilinu. Þóttist hún þá í svefninum sjá stóran mann og ferlegan lúta fram yfir steininn og horfa á sig með illilegu augnaráði. Varð hún hrædd og gat enga björg sér veitt. Eftir litla stund þótti henni maðurinn segja: „Hún er þá í helvítis kufli!“ En við það vaknaði hún og leit upp, og um leið sá hún höfuð og herðar þessa mikla manns hverfa á bak við steininn. Stóð hún þá upp og sá á eftir honum á hvarf í gilið. Hann var klæddur gráum kufli og hafði barðastóran, gráan hatt á höfði.
Helga var sögð vera fædd í sigurkufli.
Источник: Gríma XIX. Tímarit fyrir íslenzk þjóðleg fræði. Ritstjórar: Jónas Rafnar og Þorsteinn M. Jónsson. Útgefandi: Þorsteinn M. Jónsson. Akureyri. 1944. Bls. 80.
OCR: Speculatorius