e. Silungurinn og gullhringurinn.

[Eftir sögn Björns Kristjánssonar kaupfélagsstjóra. Handrit Þ. M. J.]

Eitt sinn missti kona á Víkingavatni gullhring í vatnið og fann hann ekki aftur. Alllöngu síðar veiddist silungur í Mývatni, og í maga hans fannst gullhringur með fangamarki konunnar á Víkingavatni. Var því ekki um að villast, og þótti víst, að undirgöng væru á milli þessara tveggja vatna.

Источник: Gríma XIX. Tímarit fyrir íslenzk þjóðleg fræði. Ritstjórar: Jónas Rafnar og Þorsteinn M. Jónsson. Útgefandi: Þorsteinn M. Jónsson. Akureyri. 1944. Bls. 37.

OCR: Speculatorius

© Tim Stridmann