(Handrit Hannesar Jónssonar í Hleiðargarði).
Skammt frá bænum Leyningi í Eyjafirði er tjörn, sem kölluð er Skötutjörn. Hún er mjög djúp og holbekkt, og vill það oft til að skepnur drepa sig í henni. Nafn sitt hefur tjörnin fengið af því, að nokkrum sinnum hafa menn þótzt sjá í henni kvikindi nokkurt, er þeir hafa ekki borið kennsl á. Hafa þeir sagt, er séð hafa, að líkast væri það skötu að skapnaði. Hafa menn orðið mjög hræddir við skepnu þessa, en þó hefur það aldrei borið við, að hún hafi gert neitt illt af sér. — Mun nú vera orðið langt síðan hún sást síðast.
Источник: Gríma X. Þjóðsögur. Safnað hefur Oddur Björnsson. Jónas Rafnar bjó undir prentun. Útgefandi Þorsteinn M. Jónsson. Akureyri. 1934. Bls. 80.