Skrímsl hefur sézt í Jökulsá fyrir ofan brúna. Hafa þeir séð það frá fjórum bæjum, Giljum, Teigaseli, Skeggjastöðum og Hvanná. Það skal vera nokkru stærra en hestur, svart á lit, en líkast í vaxtarlagi íslenzkum bát. Fór það upp eftir móti straumi og í einum stað kom það á grynningar, og hafði þar orðið mikil umbrot, en ég trú enginn vogaði að hyggja nákvæmlega að því.
Источник: Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri (1954), Jón Árnason, I. bindi, bls. 638.