e. Urðarteigsfjall.

[Handrit Árna Jóhannssonar. Sögn Sölva bónda Magnússonar í Kaupangi, 1906.]

Í miðjum Hrafnkelsdal, austan megin árinnar, er fjall, sem heitir Urðarteigsfjall. Það orð hefur legið á, að um fengitíð megi ær ekki ganga í fjalli þessu, því að þá verði lömbin vansköpuð. Gamalt fólk í dalnum lagði fullan trúnað á þetta og kvaðst hafa eigin reynslu fyrir því.

Источник: Gríma XXI. Tímarit fyrir íslenzk þjóðleg fræði. Ritstjórar: Jónas Rafnar og Þorsteinn M. Jónsson. Útgefandi: Þorsteinn M. Jónsson. Akureyri. 1946. Bls. 80.

OCR: Speculatorius

© Tim Stridmann