Smalastúlkan

Það bar til vestur í Dalasýslu, að smalastúlka ein fór til kirkju og var til altaris. Þegar hún kom frá kirkjunni, fór hún undir eins að smala og gaf sér ekki tíma til að borða áður. Hún gekk með klettum nokkrum. Þá heyrir hún, að sagt er í klettunum: „Ragnhildur í Rauðhömrum!“ Þá var svarað í öðrum klettum: „Hvað viltu, þursinn í Þríhömrum?“ Þá segir hann: „Hér hleypur steik um stíga; tökum hana, tökum hana.“ Þá er svarað í hinum klettunum: „Svei henni, láttu hana fara; hún er kolug um kjaftinn.“ Stúlkan fór sinn veg og heyrði ekki meira af samtali hjúa þessara.