Á Stað í Hrútafirði er gömul hestarétt í útsuðurhluta vallarins. Í miðri tóftinni stendur steinn einn mikill, svo sem hálf þriðja alin á hvern veg. En svo stendur á með stein þenna að fyrsta sinni er messað var í kirkjunni á Stað þá reiddust tröllin í Tröllakirkju og köstuðu steini þessum og ætluðu að brjóta með honum kirkjuna, en hann lenti í tóftinni og urðu undir honum fjórir hestar.
Tröllakirkja er hæsti hluti Snjófjalla þeirra sem eru vestanvert við Holtavörðuheiði og dregur hún nafnið af því að hún var aðalaðsetur allra trölla í vesturfjöllunum.
Источник: Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri (1954), Jón Árnason, I. bindi, bls. 206.