Krossgötur

Sumir segja að krossgötur séu þar, t.d. á fjöllum eða hæðum, sem sér til fjögurra kirkna. Elsta trúin er sú að menn skuli liggja úti jólanótt því þá er áraskipti og enn í dag telja menn aldur sinn eftir jólanóttum og sá er t.d. kallaður 15 vetra sem hefur lifað 15 jólanætur. Síðar færðu menn ársbyrjunina á nýársnótt.

Þegar menn sitja á krossgötum þá koma álfar úr öllum áttum og þyrpast að manni og biðja hann að koma með sér en maður má engu gegna. Þá bera þeir að manni alls konar gersemar, gull og silfur, klæði, mat og drykk, en maður má ekkert þiggja. Þar koma álfakonur í líki móður og systur manns og biðja mann að koma og allra bragða er leitað.

En þegar dagur rennur þá á maður að standa upp og segja: „Guði sé lof, nú er dagur um allt loft.“ Þá hverfa allir álfar en allur þessi álfaauður verður eftir og hann á þá maðurinn. En svari maður eður þiggi boð álfa þá er maður heillaður og verður vitstola og aldrei síðan mönnum sinnandi.

Því varð manni sem Fúsi hét og sat úti jólanótt og stóðst lengi, þangað til ein álfkona kom með stóra flotskildi og bauð honum að bíta í. Þá leit Fúsi við og sagði það sem síðan er að orðtaki haft: „Sjaldan hef ég flotinu neitað.“ Beit hann þá bita sinn úr flotskildinum og trylltist og varð vitlaus.

(J.Á.I. — Eftir sögn herra Jóns Sigurðssonar.)