Í kirkjugarðinum á Staðarfelli er fornmannasteinn kallaður Hrómundarsteinn (þó ekki eldri en frá 17. öld). Þessum steini var eitthvað kippt úr stað skömmu áður en bærinn brann,1 en í eldinum sáu menn hávan mann svo að tók upp yfir fellið og það sögðu menn að verið hefði Hrómundur.
Источник: Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri (1954), Jón Árnason, I. bindi, bls. 228.