Þessa vísu er og sagt að útburður hafi kveðið, en ekki vita menn hver drög til hennar liggja:
„Er ég skjótur eins og valur,
undirförull sem kjói;
föðurland mitt er Flókadalur,
fæddur er ég á Mói.“1
1 Flókadalur er til bæði í Skagafjarðarsýslu og Borgarfjarðarsýslu og ef til vill víðar á Íslandi, en Mór heitir bær nokkur í Fljótum.
Источник: Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri (1954), Jón Árnason, I. bindi, bls. 219.