Hani

Þess hefur áður verið getið að skoffín kæmi úr hanaeggi, því hanar eiga egg þegar þeir verða gamlir.1 Ef maður tekur spora undan vinstra hanafæti og ber á sér ber maður sigur í hverju máli. Ef hjarta er tekið úr alsvörtum ketti og ístra úr alhvítum hana, blandað saman og borið í augun verður maður skyggn og sér jafnt á nótt sem degi.


1 Sbr. Skoffín, skuggabaldur og urðarköttur, í Ferfætlingum, 610. bls.

Источник: Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri (1954), Jón Árnason, I. bindi, bls. 620.

© Tim Stridmann