Steindepillinn

Steindepillinn er áður nefndur til þess að hann valdi undirflogi, ég hef einkum heyrt á ám, en Eggert Ólafsson segir bæði á kúm og ám,1 í hefndarskyni fyrir það ef eggin hans eru ómökuð á vorin. En Mohr hefur heyrt þá trú hér að gamlir menn hafi fælt börn frá að hrella hann eða ómaka steindepilshreiður með því að segja þeim að fingurnir á þeim stirðnuðu upp eða krepptust ef þau snertu eggin hans eða ungana.


1 Ferðabók Eggerts og Bjarna, Rvík 1943, I, 408. bls.; sbr. III. flokks 2. grein, tilberi, 419. bls. á undan.

Источник: Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri (1954), Jón Árnason, I. bindi, bls. 619.

© Tim Stridmann