Þjóðsögurnar geta og þess ef menn fyrirfara sér sjálfir og einkum ef það eru heldri menn og af sérstaklegum orsökum. Þannig heitir Nikulásargjá gjá sú sem liggur austanvert við Lögberg á hinum forna þingstað Íslendinga á Þingvöllum og eru þau drög til þess að Nikulás sýslumaður Magnússon í Rangárvallasýslu skal hafa steypt sér í hana af því hann óttaðist að hann mundi falla á mannorðsmáli sem hann átti í um það leyti. Þessi viðburður er sagt að hafi orðið 1742.1
1 Sbr. Árb. IX, 148. bls., og Eftirmæli 18. aldar, 8vo, 648. bls.
Источник: Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri (1954), Jón Árnason, II. bindi, bls. 106.